Stærðfræðinám á háskólastigi snýst mikið til um hugtakaskilning, samband hugtaka á milli og ákveðin kerfi sem þau mynda. Áhersla er lögð á góðan fræðilegan grunn, gagnrýna hugsun og röksemdafærslur.
Grunnnámi lýkur með BS gráðu
Námstími er þrjú ár
Námsvalshjól Háskóla Íslands
Kröfur
Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám með ákveðnum lágmarksfjölda eininga í stærðfræði og náttúrufræðigreinum.
Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Í grunnnámi í stærðfræði er sameiginlegur kjarni en síðan hægt að velja á milli sjö kjörsviða; stærðfræðigreiningar, reiknifræði, tölvunarfræði, eðlisfræði, sameindalíffræði, líkinda- og tölfræði, og hagfræði.
Kennsla
Háskóli Íslands hefur boðið upp á þrjár námsleiðir til BS – prófs í stærðfræði, stærðfræði BS, hagnýta stærðfræði og stærðfræði og stærðfræðimenntun. Þá hefur verið í boði framhaldsnám til MS gráðu, hvort tveggja í stærðfræði og tölfræði.
Að loknu námi
Starfsvettvangur stærðfræðinga er víðtækur svo sem hjá fjármála-, líftækni-, eða hugbúnaðarfyrirtækjum, verkfræðistofum eða tryggingafélögum.
Tengt nám