Viðskipta- og hagfræðibrautir framhaldsskóla bjóða upp á fjölbreytt og almennt bóknám með áherslu á fyrrnefndar greinar. Áherslur í náminu geta einnig tengst markaðs- og lögfræði, bókfærslu, fjármálalæsi, stjórnun og grunnþekkingu á rekstri fyrirtækja. Náminu lýkur með stúdentsprófi.
Kröfur
Inntökuskilyrði á viðskipta- og hagfræðibrautir geta verið nokkuð breytileg eftir skólum og best að kanna þau á heimasíðum skólanna. Nemendur þurfa þó að hafa lokið grunnskólaprófi með ákveðinni lágmarkseinkunn í kjarnagreinunum íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði.
Námsskipulag
Nám á viðskipta- og hagfræðibrautum er að mestu bóklegt og skiptist alla jafna í kjarna- og valgreinar þannig að laga megi námið ákveðnum þörfum eða áhugasviðum en valið er alltaf mikilvægt er að skipuleggja með hliðsjón af aðgangsviðmiðum háskóla. Kennslu- og námsaðferðir geta verið fjölbreyttar en í flestum tilfellum er áhersla lögð á virka þátttöku og sjálfstæð vinnubrögð ásamt samvinnu kennara og nemenda.
Kennsla
Viðskipta- og hagfræðibrautir eru við marga framhaldsskóla og hafa eftirtaldir samþykkta námskrá. Námið gæti verið í boði víðar.
Borgarholtsskóli
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Fjölbrautaskólinn í Ármúla
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Flensborgarskóli í Hafnarfirði
Menntaskólinn í Kópavogi
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Verzlunarskóli Íslands
Að loknu námi
Nám á viðskipta- og hagfræðibraut getur verið góður undirbúningur fyrir áframhaldandi nám í viðskipta- og skyldum námsleiðum á háskólastigi.
Tengt nám