Bókbindarar vinna við tölvustýrðar bókbandsvélar í prentsmiðjum eða upplýsinga- og fjölmiðlafyrirtækjum. Í starfinu felst fyrst og fremst að stýra slíkum vélum, sem skera, binda og brjóta bækur, þó einnig sé unnið við handbókband. Bókband er löggilt iðngrein.
Sem dæmi um vélar sem notaðar eru við bókband má nefna brotvél sem stillir bókabrot, bein- og þrískera, heftivél, fræsara, sauma- og bindigerðavél og gyllingarvél.

Helstu verkefni

- sjá um lokafrágang á prentuðu efni
- veita ráðgjöf um frágang prentgripa og efnisval vegna bókbands
- stýra og stilla bókbandsvélar
- hanna útlit bóka

Hæfnikröfur

Sem bókbindari þarftu að hafa grunnþekkingu á öllu vinnsluferli prentverks og þekkja vel til véla og tölvustýrðs búnaðar sem notaður er í faginu. Einnig er mikilvægt að geta skipulagt verk fyrir bókalínur og þekkja til verkþátta grunn- og djúpfals.
GRAFÍA

Námið

Bókband hefur verið kennt við Tækniskólann, samtals fjórar annir í skóla auk starfsþjálfunar.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika