Húshjálp eða au pair tekur að sér að búa hjá fjölskyldu erlendis og fær gistingu, fullt fæði og vasapening gegn því að annast um börn fjölskyldunnar og sinna einföldum heimilisstörfum. Oftast er um eins árs dvöl að ræða og er ferðakostnaður oftast greiddur af húshjálpinni sjálfri.
Oft er um að ræða 30 stunda vinnuviku með 1 – 2 frídögum auk viku leyfis fyrir hverja sex mánuði í starfi. Annars er vinnutími ákveðinn af viðkomandi fjölskyldu og má a.m.k. reikna með barnapössun síðdegis og á kvöldin, stundum gegn auka greiðslu.
Helstu verkefni
Passa börn fjölskyldunnar.
Fylgja börnum í og úr skóla.
Létt heimilisstörf.
Hæfnikröfur
Húshjálp þarf að hafa gaman af að umgangast börn og geta borið á þeim ábyrgð. Einnig er mikilvægt að geta aðlagast nýjum aðstæðum, vera tilbúin til að læra nýtt tungumál og vera forvitin um aðra menningarheima.
Umsóknarskilyrði:
- 18 ára lágmarksaldur
- Grunnþekking á viðkomandi tungumáli
- Æskilegt að hafa reynslu af barnapössun
- Stundum er farið fram á bílpróf
Að hluta byggt á Utdanning.no - Au pair
Tengd störf