Á stúdentsbraut í tölvuleikjagerð er unnið með færni og þekkingu sem býr nemendur undir áframhaldandi fjölbreytt nám á háskólastigi í greinum sem tengjast gerð tölvuleikja. Áhersla er lögð á hagnýta menntun í tölvuleikjagerð, skapandi greinum og frumkvöðla- og markaðsfræðslu.
Náminu lýkur með stúdentsprófi. Námstími er þrjú ár.
Í náminu er reynt að horfa til áhuga og styrkleika hvers nemenda með sjálfstæði, skapandi hugsun, rökvísi og jákvæð samskipti að leiðarljósi.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla með hæfnieinkunn B í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði eða hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.
Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Nám til stúdentsprófs í tölvuleikjagerð er staðbundið og samanstendur af 140 feininga kjarna (grunnáfangar og tölvuleikjanámskeið) auk valgreina. Áfangar sem tengjast tölvuleikjagerð eru unnir í samstarfi við fyrirtæki úr atvinnulífinu.
Kennsla
Nám til stúdentsprófs í tölvuleikjagerð er kennt við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Að loknu námi
Að loknu stúdentsprófi í tölvuleikjagerð geta nemendur staðið frammi fyrir fjölbreyttum möguleikum á borð við framhaldsnám í háskóla eða þátttöku í atvinnulífinu hjá fyrirtækjum í bransanum, jafnvel með eigin viðskiptahugmynd í farteskinu.
Tengt nám