Prentarar starfa á öllum sviðum prentunar, kunna skil á heildarferli prentverks og geta unnið með öðrum þáttum þess, svo sem prentsmíð og bókbandi. Prentarar taka við verki á prentplötu, myndamóti eða í tölvutæku formi, stilla það ásamt litaáferð og pappír í prentvél, og prenta síðan. Prentun er löggilt iðngrein.

Vinnustaðir prentara eru:
- almennar prentsmiðjur við prentun á bókum, auglýsingum og fleiru
- blaðaprentsmiðjur við prentun á dagblöðum, bæklingum og tímaritum
- umbúðaprentsmiðjur við prentun á umbúðum, vörumerkingum og merkimiðum
- stafrænar prentstofur við fjölbreytileg verkefni í minni upplögum

Prentarar vinna mikið í samstarfi við aðra svo sem prentsmiði, bókbindara, grafíska miðlara, hönnuði, teiknara og ljósmyndara.

Helstu verkefni

- taka við verklýsingu sem tilgreinir hvernig verk skuli unnið
- tryggja prentgæði
- stjórna prentvélbúnaði og tölvum og tækjum sem honum fylgir
- umhirða prentvéla, þrif og stillingar

Hæfnikröfur

Prentari þarf að þekkja vel þá verkferla sem notaðir eru innan prentiðnaðar. Í því felst að geta gert verklýsingar, keyrt út prentplötur og undirbúið gögn fyrir stafræna prentun, sinnt daglegri umhirðu véla og kunna á stönsun, fellingu, rifgötun, tölusetningu, upphleypingu og yfirborðsmeðferð við frágang prentverks.

GRAFÍA

Námið

Prentiðn er kennd við Tækniskólann. Meðalnámstími er þrjú ár, samtals fjórar annir í skóla auk starfsþjálfunar.
 

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika