Prentsmíði og grafísk miðlun er eitt og sama starfið. Grafískir miðlarar annast forvinnslu prentgripa, sjá um ferlið frá því hugmynd kviknar þar til verk er tilbúið til prentunar eða birtingar. Hlutverk þeirra er því að miðla myndum og gögnum þannig að viðtæki; prentgripir og skjáir birti þau gögn rétt og vel. Grafísk miðlun er löggilt iðngrein. Vinna grafískra miðlara fer að miklu leyti fram í tölvum, í teikni-, myndvinnslu- og umbrotsforritum. Í starfi grafísks miðlara gætirðu unnið í prentsmiðjum, auglýsingastofum eða grafískum deildum fyrirtækja.

Helstu verkefni

Viðfangsefni grafísks miðlara eru  þrenns konar:
- umbrot og gagnavinnsla
- myndvinnsla og útlitsteiknun
- hönnun

Hæfnikröfur

Prentsmiður/grafískur miðlari þarf að geta tekið á móti texta og myndefni og gengið frá því til prentunar eða birtingar. Einnig þarf að kunna góð skil á textameðferð og textasetningu, þekkja vel leturgerðir og stílbrigði og hafa gott vald á myndbyggingu. Í starfinu er nauðsynlegt að þekkja til vefsmíði og viðmótshönnunar sem og útlitshönnunar fyrir sjónvarp, netmiðla og snjalltæki.
GRAFÍA

Námið

Grafísk miðlun (prentsmíði) er nám á framhaldsskólastigi, kennt við Tækniskólann. Meðalnámstími er þrjú til fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika