Starf sjúkraliða felur í sér eftirlit og umönnun einstaklinga og fjölskyldna á heilbrigðisstofnunum eða heimilum. Starfið er fjölbreytt, allt frá því að veita stuðning og hvatningu við athafnir daglegs lífs til þess að hjúkra mikið veikum einstaklingum á sérhæfðum deildum. Sjúkraliði er lögverndað starfsheiti.
Í starfi sjúkraliða eru algengir vinnustaðir sjúkrahús, hjúkrunarheimili, heilsugæslustöðvar eða aðrar heilbrigðisstofnanir. Sem sjúkraliði tekurðu þátt í þverfaglegri teymisvinnu um hjúkrun og meðferð, átt samskipti við ólíka einstaklinga undir ýmsum kringumstæðum og þarft að geta metið líkamlegt, andlegt og félagslegt ástand einstaklinga og fjölskyldna í samráði við hjúkrunarfræðinga, lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk.
Helstu verkefni
- aðstoða og leiðbeina sjúklingum við athafnir daglegs lífs og endurhæfingu
- hafa eftirlit með og fyrirbyggja fylgikvilla rúmlegu
- umsjón með umönnun tiltekinna sjúklinga
- leiðbeina aðstoðarfólki við aðhlynningu
- fræðsla um bata, heilsueflingu og úrræði í heilbrigðiskerfinu
Hæfnikröfur
Sjúkraliðar þurfa að búa yfir þekkingu á hjúkrunar- og umönnunarstörfum og geta rökstutt þá meðferð sem framfylgt er hverju sinni. Ástand skjólstæðinga er metið í samvinnu við annað heilbrigðisstarfsfólk og því mikilvægt að geta átt samskipti við ólíka einstaklinga með ólíkar þarfir og tekið þátt í þverfaglegu samstarfi á vinnustað. Mikilvægt er að búa yfir tölvukunnáttu vegna skráningar og varðveislu upplýsinga og vera fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhapp ber að höndum.
Sjúkraliðafélag Íslands
Námið
Meðalnámstími í sjúkraliðanámi er um þrjú ár að meðtöldu níu vikna verknámi og sextán vikna starfsþjálfun á heilbrigðisstofnun.
Námsbrautin hefur verið í boði við Fjölbrautaskólann við Ármúla, Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Vesturlands, Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, Menntaskólann á Ísafirði, Verkmenntaskóla Austurlands og Verkmenntaskólann á Akureyri.
Sjúkraliðabrú kann einnig að vera í boði, ætluð þeim sem hafa starfsreynslu eða fyrra nám til að byggja á.
Þá býður Háskólinn á Akureyri upp á fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða.
Tengd störf