Skógtæknir eða garðyrkjufræðingur á sviði skógar og náttúru starfar við ræktun, umhirðu og hagnýtingu skóglendis og trjáreita og umsjón útivistarsvæða. Starfið felur í sér framkvæmdir, eftirlit, verkstjórn og fræðslu á sviði landbóta; skógræktar og náttúruverndar.
Í starfi sem skógtæknir gætirðu starfað sjálfstætt, hjá verktakafyrirtæki, skógræktarfélögum, Skógrækt ríkisins, landshlutabundnum skógræktarverkefnum eða hjá sveitarfélögum, skógarbændum og öðrum landeigendum.
Helstu verkefni
- nýrækt skóga og trjáreita
- umhirða, grisjun og nýting skóga og trjáreita
- umsjón með lagningu þjónustuvega, göngu- og reiðleiða um útivistarsvæði
- ráðgjöf um val og meðferð á plöntum og trjágróðri
- móttaka og umhirða skógar- og skjólbeltaplantna
- skipulagning og framkvæmd skjólbeltaræktunar
- skógarhögg og nýting trjáviðar
Hæfnikröfur
Skógtæknir þarf að þekkja til tegunda trjágróðurs í ræktun á Íslandi, vistfræði íslenskra gróðurlenda og geta metið landgæði. Mikilvægt er að þekkja algengustu skaðvalda í skóg- og trjárækt og mótvægisaðgerðir gegn þeim.
Skógræktarfélag Íslands
Námið
Í Landbúnaðarháskóla Íslands er í boði fagdeild skógar og náttúru og námsbrautir sem veita þekkingu á störfum sem lúta að skógrækt og umönnun umhverfis.
Tengd störf