Söðlasmiður vinnur að söðlasmíði allt frá fyrstu hugmynd til fullbúinnar vöru og annast viðgerðir og viðhald á reiðtygjum og annarri leðurvöru. Söðlasmíði er löggilt iðngrein.
Í starfi söðlasmiðs gætir þú starfað á söðlaverkstæði, sinnt þjónustu við viðskiptavini eða ráðgjöf og sölu í tengslum við hestamennsku.
Helstu verkefni
- viðhald og viðgerðir á reiðtygjum og leðurvöru
- nýsmíði og undirbúningur fyrir vinnslu á reiðtygjum og leðurvöru
- sala á vörum sem heyra til umhirðu söðla
Hæfnikröfur
Söðlasmiður þarf að hafa umfangsmikla þekkingu á tækjum, handverkfærum og efnum sem tengjast greininni. Mikilvægt er að geta unnið eftir teikningum og sett saman verklýsingar fyrir vörur og verk. Söðlasmiður saumar, pússar, límir og litar, vinnur með ýmis áhöld, efni og tæki og þarf að geta notað tölvutækni við upplýsingaöflun og hugmyndaþróun.
Tengd störf