Sorphirðumenn fjarlægja úrgang frá heimilum og fyrirtækjum og losa í bíl sem flytur sorpið til förgunar eða í endurvinnslu. Sorphirðumaður starfar sem hluti af teymi sem fylgir áætlun um sorphirðu á ákveðnum svæðum í hverri viku.
Starfið getur falið í sér að keyra sorphirðubíl og/eða starfa sem hópstjóri sorphirðumanna.
Helstu verkefni
- ná í og safna saman sorptunnum
- losa sorptunnur í sorphirðubíl
- vinna samkvæmt áætlun í ákveðnum hverfum
Hæfnikröfur
Starf sorphirðumanns getur verið líkamlega krefjandi og líkamleg hreysti og gott úthald því nauðsynlegt. Mikilvægt er að geta unnið í samstarfi við aðra og æskilegt að hafa þekkingu á flokkun sorps og endurvinnslu.
Tengd störf