Verkefni starfsmanna í skógrækt eru nokkuð breytileg eftir árstíðum. Í starfinu felst til dæmis að gróðursetja tré og plöntur, hirða skóginn, taka þátt í grisjun og taka á móti þeim sem kynnast vilja skógrækt á Íslandi.

Í starfi við skógrækt gætirðu unnið undir verkstjórn skógtæknis eða sambærilegs sérfræðings og jafnvel verið falin tímabundin mannaforráð sem flokksstjóri eða verkstjóri sumarstarfsfólks.

Helstu verkefni

- gróðursetning og sáning
- áburðargjöf og umhirða plantna
- grisja skóg og flytja timbur
- umsjón svæða svo sem sláttur, girðingavinna og viðhald gönguleiða
- móttaka og leiðsögn (til dæmis kynningar fyrir skóla)
- vinnsla og sala skógarafurða
- einfalt viðhald tækja og véla

Hæfnikröfur

Fyrir starf í skógrækt þarf að vera vel á sig komin/n líkamlega og kunna rétta líkamsbeitingu við þau störf sem unnin eru. Einnig er mikilvægt að þekkja helstu trjátegundir sem notaðar eru í skógrækt hér á landi.

Í skógrækt eru notuð ýmsar vélar og verkfæri svo sem keðjusagir, kjarrsagir og vinnuvélar auk dráttarvéla og tengdra tækja. Skógarmaður þarf að sjá um val á viðeigandi verkfærum og hafa réttindi á þau tæki sem notuð eru.

Skógræktarfélag Íslands

Námið

Í Landbúnaðarháskóla Íslands er í boði fagdeild skógar og náttúru og námsbrautir sem veita þekkingu á störfum sem lúta að skógrækt og umönnun umhverfis.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika