Stjörnufræðingar eða stjarneðlisfræðingar stunda rannsóknir á því sem fram fer utan lofthjúps jarðar. Rannsóknir þeirra snúa að uppruna, gerð, hreyfingum og þróun sólkerfa, pláneta, vetrarbrauta, stjarna og annarra fyrirbæra himingeimsins.
Stjörnufræði byggir á eðlis- og stærðfræði þar sem hátæknivædd verkfæri eru notuð til að safna saman gríðarlegu magni upplýsinga og greina með aðstoð tölvuforrita sem herma eftir hreyfingum og þróun úti í hinum risastóra alheimi.
Flestir stjörnufræðingar starfa við háskóla eða tengdar rannsóknarstofnanir svo sem í tengslum við veðurfræði. Einnig geta stjörnufræðingar til dæmis unnið við raungreinakennslu á framhaldsskólastigi.
Helstu verkefni
- upplýsingaöflun og greiningarvinna
- kennsla og rannsóknir
- ritstörf
Hæfnikröfur
Störf sem tengjast stjörnufræði krefjast mikils áhuga á raungreinum og tækni, sér í lagi stærðfræði og eðlisfræði. Mikilvægt er að hafa auga fyrir smáatriðum og skipulagi þar sem strangar kröfur eru gerðar til nákvæmni og trúverðugleika í greininni.
Stjörnufræðivefurinn
Að mestu byggt á Utdanning.no - Astronom
Námið
Við Háskóla Íslands er í boði námsleið til BS gráðu í eðlisfræði með áherslu á stjarnvísindi. Til að starfa sem stjörnufræðingur þarf oftast að ljúka grunn- eða meistaranámi í háskóla og doktorsnámi til að stunda rannsóknir á háskólastigi.
Tengd störf