Umhverfisfræðingar starfa meðal annars við rannsóknir til að bera kennsl á, minnka eða stoppa upptök mengunar eða annarrar hættu í umhverfinu. Umhverfisfræðingur vinnur með vísindalegar upplýsingar, oft úr mismunandi fræðigreinum, og byggir á þeim tillögur að aðgerðum í umhverfismálum.
Umhverfisfræðingur getur unnið sjálfstætt, hjá einkafyrirtækjum eða hinu opinbera. Sem umhverfisfræðingur gætirðu til dæmis unnið hjá Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun, sveitarfélögum, á vísinda- og rannsóknarstofnunum eða í ráðgjafarfyrirtækjum.
Helstu verkefni
- endurskoða og innleiða reglur, stefnur og staðla í umhverfismálum
- greina og útskýra gögn, til dæmis um útblásturs-, vatns og loftmengun
- upplýsingagjöf til almennings og opinberra stofnanna
- ráðgjöf um stefnumótun og framkvæmdir
- umhverfiseftirlit og rannsóknir á umhverfislagabrotum
- rannsóknir sem meta umhverfisáhrif verkefna
Hæfnikröfur
Umhverfisfræðingur þarf að hafa mikla þekkingu á umhverfi og náttúru sem og áhuga á umhverfis- og náttúruvernd. Góð þekking á raunvísindagreinum er nauðsynleg auk skipulagshæfileika og getu til að stjórna og bera ábyrgð á verkefnum. Í umhverfisfræði er einnig sívaxandi áhersla á samvinnu ólíkra fræðigreina þar sem þekkingu á til dæmis hagfræði og félagsfræði er tvinnað saman við hefðbundnari náttúru- og umhverfisfræði.
Félag umhverfisfræðinga á Íslandi
Námið
Nám í náttúru- og umhverfisfræði við Landbúnaðarháskólann tekur þrjú ár og lýkur með BS – gráðu. Einnig er í boði nám til meistaragráðu..
Við Háskóla Íslands eru námsleiðir í umhverfis- og auðlindafræði, bæði viðbótardiplóma og til meistaragráðu auk námsleiða í umhverfis- og byggingarverkfræði.
Tengd störf