Félagsráðgjafar aðstoða fjölskyldur, einstaklinga og hópa við að bæta félagslega stöðu sína. Starfið felst að miklu leyti í ráðgjöf, upplýsingagjöf og stuðningi auk þess að vinna að nýjum félagslegum úrræðum í félags- eða heilbrigðiskerfi. Félagsráðgjafi er lögverndað starfsheiti.

Félagsráðgjafar vinna gjarnan í samstarfi við stofnanir og sérfræðinga í félags- og heilbrigðisþjónustu. Margir sérhæfa sig í greinum á borð við öldrunarþjónustu, barnavernd, meðferð áfengis- og vímuefnaneytenda, meðferð á sjúkrahúsum, fjölskyldumeðferð og málefni fatlaðra.

Helstu verkefni

- kynna sér aðstæður og þarfir skjólstæðings
- leita réttar til félagslegrar aðstoðar
- gera áætlanir sem miða að því að bæta aðstæður fólks
- vinna að félagslegri endurhæfingu
- leita úrræða um vistun fyrir börn, aldraða eða fatlaða
- veita stuðningsviðtöl eða meðferð
- skipuleggja og stjórna hópstarfi

Hæfnikröfur

Starfsleyfi félagsráðgjafa er gefið út af landlækni til þeirra sem lokið hafa meistaranámi úr háskóla í greininni. Sem félagsráðgjafi þarftu að geta borið ábyrgð á þeirri ráðgjöf, meðferð og forvörnum sem beitt er í starfi en þekkja einnig faglegar takmarkanir.

Félagsráðgjafafélag Íslands

Námið

Félagsráðgjöf er kennd við Háskóla Íslands og er BA í félagsráðgjöf þriggja ára nám.

Til að geta sótt um löggild starfsréttindi þarf einnig að ljúka tveggja ára meistaranámi.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika