Grafískir hönnuðir starfa við að miðla hvers kyns efni á sjónrænan og auðskilinn hátt. Í starfinu er unnið með texta, letur, myndir og liti. Aðferðum grafískrar hönnunar er beitt við hönnun á auglýsingum, firmamerkjum, umbúðum og ýmsum öðrum prentgripum ásamt sjónvarpsefni og grafísku útliti vefsíðna. Grafískir hönnuðir hanna einnig leturgerðir, vinna við „effecta“ í kvikmyndum og margt fleira.

Í starfi grafísks hönnuðar gætirðu til dæmis starfað á auglýsingastofu, í fjölmiðlum eða prentsmiðjum. Unnið er með margskonar tölvutengdan búnað, leturgerðir og stílbrigði, oftast í samvinnu við aðra svo sem umbrotsfólk, markaðsfræðinga, textahöfunda, kvikmyndagerðarfólk, prentara eða smiði.

Helstu verkefni

- hugmyndavinna og skissugerð
- uppsetning og frágangur á efni til prentunar
- hönnun fyrir skjámiðla
- ráðgjöf um útlit og kynningarmál fyrirtækja
- hönnun á sýningarbásum fyrir vöru- og þjónustusýningar

Hæfnikröfur

Grafískir hönnuðir þurfa að hafa áhuga á hönnun og framsetningu upplýsinga. Grafísk hönnun tekur sífelldum breytingum og því er mikilvægt að fylgjast vel með nýjungum og því sem er að gerast í starfsumhverfinu. Rík sköpunargáfa og hæfni í að sinna fjölbreyttum verkefnum eru góðir kostir.

GRAFÍA

Námið

Grafísk hönnun er þriggja ára háskólanám til BA-prófs við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika