Kirkjuverðir sinna móttöku, símsvörun og bókunum vegna kirkjustarfs og taka einnig þátt í helgihaldi og safnaðarstarfi. Í starfinu felst ýmiskonar viðhaldsvinna, þrif og umsjón með húsnæði og kirkjulóð.

Í mörgum tilvikum sinna kirkjuverðir einnig starfi meðhjálpara og aðstoða þá presta við undirbúning og frágang vegna trúarathafna á borð við almennar guðsþjónustur, skírnir, giftingar og útfarir.

Helstu verkefni

- opna og loka kirkjuhúsnæði
- annast kirkjumuni svo sem krossa, kertastjaka og skírnarfonta
- undirbúa samkomur; raða stólum og stilla upp hljóðkerfi
- fylgjast með að húsreglum og helgisiðum sé fylgt
- halda dagbók um notkun kirkjunnar í samráði við prest
- viðhald og minni háttar viðgerðir
- sjá til að umhverfi kirkju sé snyrtilegt og greiður aðgangur að henni

Hæfnikröfur

Sem kirkjuvörður þarftu að eiga auðvelt með mannleg samskipti auk þess sem sveigjanleiki í starfi og rík þjónustulund eru mikilvægir kostir. Kirkjuverðir þurfa að koma vel fram, geta sýnt samkennd og hafa áhuga á kristilegum málefnum.

Heimasíða Þjóðkirkjunnar

Námið

Ekki er gerð formleg krafa um menntun til að gegna starfi kirkjuvarðar en áhugi á kirkjustarfi er afar æskilegur auk þess sem ýmis konar iðnmenntun getur verið gagnleg.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika