Í þjóðgörðum starfa þjóðgarðsverðir allt árið, einn í hverjum garði. Í starfinu felst að aðstoða stjórn viðkomandi þjóðgarðs við að útbúa stjórnunar- og verndaráætlun og sjá um framkvæmd og daglegan rekstur. Einnig að hafa umsjón með rekstri gestastofa og tjaldsvæða innan þjóðgarðsins og sinna hlutverki verkstjóra landvarða á svæðinu. Atvinnustarfsemi sem fer fram innan þjóðgarðsins þarf að vera í samráði við og með leyfi frá þjóðgarðsverði.

Helstu verkefni

- framkvæmd stjórnunar- og verndaráætlunar þjóðgarðs
- umsjón með daglegum rekstri og stjórnun svæðisins
- rekstur gestastofa og tjaldsvæða
- samskipti og samvinna við tengda hagsmunaaðila
- leiða starf í faglegri umsýslu landvörslu og fræðslu
- þátttaka í stefnumótun
- almenn stjórnsýsla og leyfisútgáfa

Hæfnikröfur

Þjóðgarðsvörður þarf að búa yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum auk skipulagshæfileika og kunnáttu í stjórnun og mannaforráðum. Reynsla af ferðamannamálum, umhverfismálum og opinberri stjórnsýslu nýtist þjóðgarðsverði vel sem og tungumálakunnátta.
Ferðamálastofa
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

Námið

Þjóðgarðsvörður þarf að hafa háskólamenntun eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika