Hæfniþrep: 3
Bifreiðasmíði picture

Bifreiðasmíði er starfsnám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst meðal annars að auka þekkingu og færni við uppbyggingu og viðgerðir burðarvirkja og yfirbygginga helstu gerða ökutækja og eftirvagna. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna. Bifreiðasmíði er löggilt iðngrein.

Meðalnámstími er þrjú og hálft ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðu skólanna.

Nám í bifreiðasmíði er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Bifreiðasmíði skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun.

Fyrsta árið er farið í sameiginlegt grunnnám bíliðngreina en eftir það sérhæfa nemendur sig í bifreiðasmíði.

Ekki er hægt að hefja nám til sveinsprófs í bifvélavirkjun nema hafa lokið grunndeildinni eða hliðstæðu námi sem skólinn metur. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.

Kennsla

Nám í bifreiðasmíði hefur verið kennt við Borgarholtsskóla.

Grunnnám bíl- málm- og véltæknigreina hefur einnig verið kennt við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestraFjölbrautaskóla SuðurlandsFjölbrautaskóla SuðurnesjaTækniskólann og Verkmenntaskólann á Akureyri.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika