Grafísk hönnun er nám á háskólastigi. Í náminu er lögð áhersla á færni og þekkingu við að miðla upplýsingum með texta og myndum, skapandi hugsun og skilning á umhverfi og samfélagi auk miðlunar efnis og hugmynda.

Náminu lýkur með BA prófi. Námstími er þrjú ár.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf úr framhaldsskóla eða sambærilegt nám. Umsækjendur skulu hafa hlotið menntun eða reynslu í listum eða hönnun og geta sýnt fram á færni og þekkingu með því að senda inn sýnishorn af verkum í möppu ásamt umsókn. Sjá nánar um inntökuferlið á heimasíðu skólans.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nám í grafískri hönnun er fræðilegt og verklegt. Ýmist er farið í skyldufög og valfög öll þrjú árin. Námið er kennt staðbundið.

Fræðileg námskeið og vinnustofur öll árin. Námskeið, lokaritgerð og útskriftarverkefni á þriðja ári.

Kennsla

Nám í grafískri hönnun hefur verið kennt innan hönnunardeildar Listaháskóla Íslands.

Að loknu námi

Eftir námið er hægt að starfa sem grafískur hönnuður. Eins veitir BA próf möguleika á framhaldsnámi á háskólastigi.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika