Kerfisfræði er grunnnám á háskólastigi. Í náminu er meðal annars farið í almenna tölvunarfræði, almenna forritun og vefforritun, reiknirit, hugbúnaðarfræði og stýrikerfi.

Náminu lýkur með diplómaprófi. Námstími miðað við fullt nám er tvö ár.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt próf. 
Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Námið er kennt í staðnámi og fjarnámi og boðið upp á skyldu- og valnámskeið. Lokaverkefni er unnið á öðru ári.
Námsskipulag getur verið eftirfarandi:

Fullt nám í staðnámi tekur tvö ár
Nám með vinnu er breytilegt eftir þörfum hvers og eins en tekur að jafnaði fjögur ár
Fjarnámi er hægt að ljúka á tveimur eða þremur árum

Kennsla

Við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík er í boði diplómanám í tölvunarfræði sem samsvarar fyrstu tveimur árunum í BSc-námi. Einnig kennt á Akureyri, í samstarfi við HA

Að loknu námi

Að loknu diplómaprófi er hægt að starfa sem kerfisfræðingur. Möguleiki er að halda áfram námi í tölvunarfræði og ljúka B.Sc prófi.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika