Hæfniþrep: 3
Málaraiðn picture

Málaraiðn er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í því felst að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að takast á við alla algenga verkþætti, allt frá mati á ástandi flatar og þar til æskilegri lokaáferð er náð. Einnig að útfæra ýmsa sérhæfða verkþætti eins og sandspörtlun bygginga, skrautmálun, skiltagerð og útfærslur á eldra handverki svo sem málun marmara- og viðarlíkinga.

Hugsanlegt er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.  Málaraiðn er löggilt iðngrein.

Meðalnámstími er fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðum skóla.

Námið hefur verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Málaranám skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.

Fyrstu önnina er farið í sameiginlegt einnar annar grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs eða byggingariðnfræði. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Störf

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika