Hæfniþrep: 5
Mannfræði picture

Mannfræði er nám á háskólastigi þar sem áhersla er lögð á að rannsaka hin mörgu og ólíku samfélög mannfólksins, skilja hugmyndir okkar og athafnir út frá ýmsum hliðum svo sem þjóðerni, listum, fólksflutningum eða þéttbýlismyndun.

Grunnnámi lýkur með BA gráðu. Námstími er þrjú ár.

Námsvalshjól Háskóla Íslands

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Mannfræði er kennd bæði sem aðalgrein og aukagrein þar sem einnig er boðið upp á 60 eininga nám í líffræðilegri mannfræði. Valnámskeið geta verið fjölbreytt og tengjast oft málefnum líðandi stundar.

Öll námskeið í grunnnáminu má taka í fjarnámi en fyrirlestrar eru teknir upp og gerðir aðgengilegir á lokuðu vefsvæði fyrir nemendur.

Kennsla

Nám í mannfræði hefur verið kennt innan Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar Háskóla Íslands, hvort tveggja til BA prófs og meistaragráðu.

Að loknu námi

Mannfræðingar starfa meðal annars við fjölmiðlun, minjasöfn, innflytjendamál, kennslu, þróunarsamvinnu, friðargæslu og erfðarannsóknir.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika