Múraraiðn er starfstengt nám á framhaldsskólastigi þar sem áhersla er lögð á að nemendur öðlist þekkingu og færni til að takast á við viðfangsefni á borð við steypuvinnu, hleðslu, múrhúðun, lagnir í gólf og gólfaslípun, lagnir og festingar flísa og náttúrusteins, járnalagnir og einangrun undir múrvinnu. Ennfremur steinhleðslu og steinlögn inni og úti ásamt múr-, steypu- og flísaviðgerðum og múrkerfum.
Múraraiðn er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.
Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.