Stálsmíði er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst meðal annars að auka þekkingu og færni við smíði og viðhald málm- og stálmannvirkja úr mismunandi efnum. Hugsanlegt er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Stálsmíði er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er þrjú ár auk starfsþjálfunar þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.