Bakarar vinna margs konar störf sem tengjast bakstri. Oftast er unnið eftir uppskriftum, þeim breytt ef ástæða er til og valin vinnsluaðferð við hæfi hverju sinni; hnoðað, hrært, þeytt eða mótað. Bakarar taka á móti hráefni, flokka það og meta, ákveða hitastig og baksturstíma og þjónusta viðskiptavini. Bakaraiðn er löggilt starfsgrein.

 Algengustu vinnustaðir bakara eru bakarí, veitingahús, hótel og sælgætisgerðir.

Helstu verkefni

- brauð- og smábrauðabakstur
- köku-, tertu-, konfekt-, sælgætis og eftirréttagerð
- sætabrauðs- og kexbakstur
- skreytingar og framleiðsla skyndirétta
- veisluþjónusta og hlaðborð
- þrif og sótthreinsun húsnæðis og búnaðar

Hæfnikröfur

Í starfi bakara þarftu að þekkja til algengustu hráefna, kunna á meðferð þeirra og geta sagt til um hollustu- og næringargildi. Mikilvægt er að geta reiknað verð á vöru og þjónustu og sýnt ábyrgð í sambandi við hreinlæti á vinnustað og þjónustu við viðskipavini.

Matvæla- og veitingafélag Íslands

Námið

Námsbraut í bakaraiðn er í Menntaskólanum í Kópavogi. Meðalnámstími er fjögur ár. Að auki er tveggja anna grunnnám matvælagreina kennt við Verkmenntaskólann á Akureyri og grunnnám matvæla- og ferðagreina við Fjölbrautaskóla Suðurlands, ætlað nemendum sem stefna á vinnu við ferðaþjónustu eða frekara nám í matvælagreinum.

 Raunfærnimat hefur farið fram og/eða kann að vera í boði.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika