Barþjónar taka á móti pöntunum og útbúa drykki, áfenga og óáfenga. Í starfinu getur falist að mæla með drykkjum vegna ákveðinna aðstæðna eða tilefna. Sums staðar er verkaskipting á milli barþjóna sem blanda drykki og starfsfólks sem tekur við pöntunum og afgreiðir en oft gera barþjónar hvort tveggja. Í starfi barþjóns þarf að fylgja reglum um afgreiðslu áfengis til dæmis um opnunartíma og að afgreiða ekki fólk sem er áberandi illa drukkið.

Barþjónar starfa víða; á krám, veitingastöðum, hótelum og annars staðar þar sem drykkir eru afgreiddir.

Helstu verkefni

- taka á móti pöntunum
- veita upplýsingar um drykki
- útbúa drykki og afgreiða
- halda barborði og umhverfi snyrtilegu

Hæfnikröfur

Í starfi sem barþjónn er mikilvægt að eiga gott með mannleg samskipti og geta unnið náið með öðrum. Barþjónar þurfa að geta unnið um kvöld og helgar, oft undir talsverðu álagi þar sem mikilvægt er að geta tekist á við óvæntar aðstæður af yfirvegun og þjónustulund.

Að hluta byggt á Utdanning.no - Bartender

Námið

Margir barþjónar starfa án formlegrar menntunar í matvæla- eða veitingagreinum. Oft er um að ræða námskeið á vegum vinnuveitanda en barfræði er einnig hluti náms í framreiðslu.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika