Kjötiðnaðarmenn útbúa kjöt og kjötrétti í neytendapakkningar og setja upp kjötborð. Í starfinu felst einnig að afgreiða og ráðleggja viðskiptavinum um meðferð hráefna, matseld og val á meðlæti. Kjötiðn er löggilt starfsgrein.
Í kjötiðn gætir þú starfar við kjötvinnslu, í kjötdeildum verslana, sláturhúsi eða við sölu og markaðssetningu á matvælum.

Helstu verkefni

- saga, úrbeina og hluta niður kjötskrokka
- taka á móti hráefni, flokka það og meta ástand og gæði
- pakka framleiðsluvörum og útbúa innihaldslýsingar
- búa til fars, pylsur, kæfu, paté, slátur og mismunandi álegg
- krydda og kryddleggja kjöt
- útbúa kjöt og kjötrétti til sölu í kjötborði

Hæfnikröfur

Kjötiðnaðarmaður þarf að þekkja viðurkenndar aðferðir við að varðveita geymsluþol, kunna á heilbrigðis- og gæðamat, geta gert innihaldslýsingar og útbúið uppskriftir og verklýsingar.
Sem kjötiðnaðarmaður notarðu sérhönnuð hand- og kjötvinnsluverkfæri í starfi og þarft að hafa góða færni í skurði, úrbeiningu og snyrtingu á kjötskrokkum. Einnig er mikilvægt að gera sér grein fyrir mikilvægi hreinlætis á vinnustað og geta þrifið og sótthreinsað húsnæði og búnað.

Námið

Nám kjötiðnaðarmanns er fjögurra ára nám á framhaldsskólastigi, kennt í Menntaskólanum í Kópavogi og Verkmenntaskólanum á AkureyriRaunfærnimat hefur farið fram og/eða kann að vera í boði.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika