Störf skólaliða tengjast velferð og vellíðan nemenda í grunnskólum þar sem nemendum er sinnt í margskonar aðstæðum. Skólaliðar gæta nemenda og leiðbeina þeim auk þess að sjá um ræstingar og þrif. Skólaliðar sinna nemendum inni sem úti, taka þátt í vettvangsferðum, veita nemendum með sérþarfir aðstoð og sitja yfir í prófum.

Í starfi sem skólaliði umgengst þú ólíka einstaklinga á öllum aldri og sinnir margbreytilegum verkefnum. Mikil samskipti eru við börn, foreldra, kennara og annað starfsfólk grunnskólans.

Helstu verkefni

- aðstoða í eldhúsi og í matartímum nemenda
- annast gæslu og eftirlit á göngum og í búningsklefum
- sinna frímínútnagæslu úti og inni
- aðstoða nemendur með fatnað ef með þarf
- halda húsnæði skóla hreinu og hafa umsjón með hreingerningartækjum
- aðstoða við uppröðun og tilfærslu á húsgögnum
- fylgja nemendum á milli kennslusvæða

Hæfnikröfur

Skólaliði þarf að geta hjálpað börnum í leik og starfi, leiðbeint þeim um góða umgengni auk þess að sjá um ræstingu á skólahúsnæði. Skólaliðar eru í mikilvægu hlutverki sem fyrirmyndir barna, þurfa að geta lesið í aðstæður og brugðist fljótt og vel við þegar þörf er á. Góð samskiptafærni og umhyggja eru miklir kostir í starfinu. Gott er einnig að geta veitt fyrstu hjálp ef slys ber að höndum.

Námið

Uppeldis- og þjónustubrautir hafa verið kenndar í Verkmenntaskóla Austurlands og Borgarholtsskóla. Meðalnámstími er eitt ár að meðtalinni sex vikna starfsþjálfun.

Raunfærnimat og/eða skólaliðabrú kann einnig að vera í boði, ætlað þeim sem hafa starfsreynslu eða fyrra nám til að byggja á.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika