Hæfniþrep: 3
Gull- og silfursmíði picture

Gull- og silfursmíði er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í því felst meðal annars að auka þekkingu og færni við gerð skartgripa, listmuna og nytjahluta úr gulli, silfri og öðrum málmum. Nemendur þurfa að þekkja vel efni sem unnið er með og kunna skil á tækni og vinnuaðferðum. Eins að geta komið vöru sinni á framfæri og í sölu. Gull- og silfursmíði er löggilt iðngrein.

Meðalnámstími er fjögur ár, samtals fimm annir í skóla og starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðu skóla.

Námið hefur verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nám í gull- og silfursmíði skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Til að ljúka námi þarf nemandi að gera samning um starfsnám hjá meistara.

Kennsla

Gull- og silfursmíði er kennd við Tækniskólann.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika