Stálsmíði er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst meðal annars að auka þekkingu og færni við smíði og viðhald málm- og stálmannvirkja úr mismunandi efnum. Hugsanlegt er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Stálsmíði er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er þrjú ár auk starfsþjálfunar þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðum skóla.
Námið hefur verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Stálsmíði skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.
Fyrstu tvö árin er farið í sameiginlegt grunnnám málmiðngreina en eftir það sérhæfa nemendur sig í stálsmíði. Nemandi gerir námssamning við iðnmeistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.
Kennsla
Nám í stálsmíði hefur verið kennt við Borgarholtsskóla, Menntaskólann á Ísafirði, Tækniskólann og Verkmenntaskólann á Akureyri.
Grunnnám málmiðngreina hefur einnig verið kennt við Fjölbrautaskólann á Suðurnesjum, Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra, Fjölbrautarskóla Suðurlands, Fjölbrautarskóla Vesturlands, Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum og Verkmenntaskóla Austurlands.
Að loknu námi
Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.
Tengt nám