Förðunarmeistarar sjá um hárgreiðslu og förðun auk þess að búa til ýmis konar gervi, svo sem hárkollur, gervinef, bólur og skalla. Í starfinu felst að skapa ákveðið heildarútlit, hvort heldur sem er, að gera fólk sem eðlilegast fyrir sjónvarpsútsendingu eða nota hárkollur og gervi í kvikmyndum.
Í starfi förðunarmeistara gætirðu unnið víða svo sem í tengslum við sjónvarp, leikhús, tónleikahald, myndatökur, kvikmyndagerð eða tískusýningar. Gjarnan er unnið í samstarfi við förðunarfólk, búningahönnuði, skriftur, tökumenn, hljóðmenn, ljósamenn, leikara og leikstjóra.
Helstu verkefni
- farða og greiða hár fyrir sjónvarpsútsendingar
- greina birtustig, litasamsetningar og mynstur
- gefa manneskju nýtt heildarútlit með sérstökum brellum og gervum
- lesa handrit, skrá glósur og skoða myndir til undirbúnings
- vera til taks á tökustað
- halda vinnuaðstöðu hreinni, fjarlæga farða og gæta þess að hárkollur og aukahlutir séu í góðu ástandi
Hæfnikröfur
Förðunarmeistarar þurfa að hafa mikinn áhuga á förðun og hárgreiðslu auk þekkingar á þeim snyrtivörum og aukahlutum sem við koma starfinu. Mikilvægt er að vera skapandi og eiga auðvelt með samskipti og tengsl þar sem í starfinu felst að hitta og taka á móti alls konar fólki við margvíslegar aðstæður. Starfið getur oft á tíðum verið krefjandi og vinnutími óreglulegur.
Námið
Ekki er að finna sérstakt nám hér á landi en ýmis konar starfstengd námskeið kunna að vera í boði.
Margir förðunarmeistarar hafa grunn í hársnyrtiiðn sem kennd er í Tækniskólanum, Verkmenntaskóla Austurlands og Verkmenntaskólanum á Akureyri auk þess sem tveggja ára grunnnám er í boði við Menntaskólann á Ísafirði.
Einnig er snyrtifræði kennd í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Tengd störf