Kaffibarþjónar vinna við þróun, gerð og afgreiðslu margskonar te- og kaffidrykkja. Í starfinu felst einnig afgreiðsla einfaldra rétta á borð við kökur, bökur og samlokur.

Í starfi sem kaffibarþjónn gætirðu unnið á kaffihúsum, veitingastöðum eða annars staðar þar sem boðið er upp á sérstaka kaffidrykki.

Helstu verkefni

- búa til og afgreiða heita eða kalda te- og kaffidrykki
- útskýra matseðla og aðstoða viðskiptavini við pantanir
- veita upplýsingar um mismunandi kaffibaunir eða smávöru
- þrífa kaffivélar, áhöld og vinnusvæði
- panta og taka á móti birgðum

Hæfnikröfur

Kaffibarþjónn þarf að hafa mikinn áhuga á kaffi og öllu sem tengist kaffigerð. Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum eru mikilvægir kostir í starfinu ásamt því að geta unnið með öðrum, oft undir nokkru álagi. Í starfinu eru notaðar kaffivélar og ýmis áhöld sem þeim tengjast auk margskonar eldhúsáhalda og kassakerfi við afgreiðslu.

Námið

Ekki er gerð formleg krafa um menntun til að gegna starfi kaffibarþjóns.

Matvælabrautir eru í boði við Menntaskólann í Kópavogi og Verkmenntaskólann á Akureyri en einnig gætu ýmis konar námskeið staðið til boða.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika