Matreiðslumaður sinnir hvort tveggja sígildri og nútíma matargerð á fjölbreyttan hátt, allt frá heimilislegum hversdagsmat að margrétta veislumáltíð. Starfsvettvangur matreiðslumanna er víða þar sem veitingar eru seldar svo sem á hótelum og veitingahúsum eða þar sem matreiðsla er hluti þjónustu líkt og í mötuneytum. Matreiðsla er löggilt iðngrein.

Sem matreiðslumaður gætirðu einnig sinnt sérhæfðum verkefnum; sýningum og kynningum þar sem matur og matargerð koma við sögu.

Helstu verkefni

- taka á móti hráefni, flokka það, meta og meðhöndla
- semja og vinna eftir uppskriftum
- setja saman matseðla eftir mismunandi tilefnum og óskum viðskiptavina
- matreiða með öllum helstu matreiðsluaðferðum
- skipuleggja og stjórna vinnu í eldhúsi

Hæfnikröfur

Í starfi matreiðslumanns er nauðsynlegt að geta beitt öllum helstu matreiðsluaðferðum og kunna skil á meginstraumum í íslenskri og alþjóðlegri matargerð. Matreiðslumaður þarf að geta unnið sjálfstætt, þróað og aðlagað matseðla, þekkja til fæðuofnæmis og vera meðvitaður um mikilvægi hreinlætis í starfi sínu.

Matvæla- og veitingafélag Íslands

Námið

Nám í matreiðslu er um fjögurra ára nám á framhaldsskólastigi, með starfsþjálfun. Námið er í boði í Menntaskólanum í Kópavogi og Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Grunnnám matvæla- og ferðagreina er einnig kennt við Fjölbrautaskóla Suðurlands, ætlað nemendum sem stefna á vinnu við ferðaþjónustu eða  frekara nám í matvælagreinum.

Raunfærnimat hefur farið fram og/eða kann að vera í boði.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika