Tónlistarkennarar kenna tónfræði, tónlistarsögu, hljómfræði, tónheyrn, tónsmíðar og samleik svo dæmi séu nefnd. Í starfinu felst einnig að sjá um skipulag og þjálfun á tónlistartengdu efni, þróa námsefni og skipuleggja viðburði.
Tónlistarkennarar starfa á öllum skólastigum, í opinberum tónlistarskólum, einkaskólum og/eða á eigin vegum. Margir sérhæfa sig á einhverju sviði svo sem í píanó- eða söngkennslu, tónfræði eða kórstjórn.
Helstu verkefni
- skipuleggja kennslu með hliðsjón af námskrá
- þjálfa nemendur í hljóðfæraleik og söng
- semja og aðlaga námsefni
- æfa hljómsveitir eða kóra og stjórna á hljómleikum
- halda námskeið í söng, hljóðfæraleik eða tónlistarkennslu
- undirbúa nemendur fyrir próf og meta vinnu og námsárangur
- prófdómarastörf
Hæfnikröfur
Í starfi tónlistarkennara er mikilvægt að hafa áhuga og þekkingu á helstu straumum og stefnum í tónlist og búa yfir skapandi hugsun. Hæfni í mannlegum samskiptum, skipulag og frumkvæði eru æskilegir eiginleikar ásamt hæfileika til að spila á hljóðfæri. Í starfi tónlistarkennara er gott að hafa grunnfærni á sem flest hljóðfæri auk þekkingar á tölvuforritum sem notuð eru við kennslu.
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum
Námið
Tónlist, leiklist og dans er eitt tólf kjörsviða í námi grunnskólakennara við Háskóla Íslands en meistaragráðu þarf til að öðlast löggilt starfsréttindi sem kennari á grunn- og framhaldsskólastigi.
Tengd störf