Kennaranám til starfsréttinda er grunn- og framhaldsnám á háskólastigi. Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist skilning á hugtökum, kenningum og aðferðum í kennslu en sérhæfing og áherslur geta verið mismunandi eftir skólum og námssviðum.
Náminu lýkur með B.Ed. og M.Ed. prófi. Námstími til B.Ed prófs er þrjú ár og M.Ed. prófs tvö ár, samtals fimm ár.
Kröfur
Grunnnám: Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun.
Framhaldsnám: Umsækjendur skulu hafa lokið B.Ed. prófi í grunnskólakennarafræði/kennarafræði eða BA prófi í kennslugreinum grunnskóla.
Námið er lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Kennaranám er bæði fræðilegt og starfstengt. Námið hefur ýmist verið í boði í staðbundið og í dreifnámi en alla jafna skyldumæting í staðlotur og vettvangsnám.
Fræðileg námskeið eru öll árin.
Lokaverkefni til B.Ed. prófs er unnið á þriðja ári en til M.Ed. prófs er lokaverkefni að jafnaði unnið á fimmta ári. Vettvangsnám fer fram samhliða.
Fjölbreyttar námsleiðir eru í boði við skólana þrjá sem best er að kanna nánar á heimasíðum þeirra.
Kennsla
Nám í kennarafræði fer fram við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Kennaradeild Háskólans á Akureyri og Listkennsludeild Listaháskóla Íslands.
Að loknu námi
Að loknu námi og við brautskráningu er leyfisbréf til kennslu á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, veitt.
Tengt nám