Hótelstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri og skipulagningu þess sem fram fer á hóteli og er markmið starfsins að tryggja að hótelgestir hafi jákvæða upplifun af veru sinni. Starfið tengist öllum sviðum, allt frá markaðs- til starfsmannamála.
Á stærri hótelum eru yfirmenn í hverri deild sem heyra undir hótelstjóra. Umfang og fjöldi verkefna ræðst nokkuð af stærð viðkomandi hótels og fjölda starfsmanna.
Helstu verkefni
- gerð fjárhagsáætlana og fjárhagsstjórn
- markaðsmál – markmiðssetning og eftirfylgni
- yfirumsjón vegna ráðninga og uppsagna á starfsfólki
- byggja upp og styrkja viðskiptatengsl
- umsjón og ábyrgð á rekstrarleyfum
- umsjón með stærri bókunum fyrir fyrirtæki og viðburði
- skipuleggja viðhald hótelbyggingar
Hæfnikröfur
Hótelstjóri þarf að hafa hæfileika á sviði viðskipta og markaðsmála. Einnig er mikilvægt að búa yfir góðum samskiptahæfileikum og þjónustulund.
Ferðamálastofa
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar
Námið
Háskólinn í Reykjavík hefur boðið upp á alþjóðlegt nám í hótelstjórnun og veitingahúsarekstri í samstarfi við César Ritz Colleges í Sviss. Hægt hefur verið að ljúka fyrsta árinu af þremur á Íslandi og útskrifast með alþjóðlegt skírteini í hótelstjórnun og veitingahúsarekstri. Kennt á ensku.
Einnig er stundum bent á nám í framreiðslu sem grunn fyrir frekara nám í tengslum við hótelstjórnun.
Tengd störf