Fjölmiðlafræði er nám á háskólastigi. Í náminu er lögð áhersla á þjálfun í textaskrifum og vinnu við útvarp, sjónvarp og samfélagsmiðla.

Náminu lýkur með BA – gráðu. Námstími er þrjú ár.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt próf.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nám í fjölmiðlafræði er hvort tveggja fræðilegt og verklegt þar sem nemendur þjálfast í að skrifa texta og miðla efni í dagblöð, útvarp, sjónvarp og samfélagsmiðla. Hluta námsins hefur verið hægt að taka í fjarnámi.

Kennsla

Háskólinn á Akureyri býður upp á BA – nám í fjölmiðlafræði auk meistaranáms í fjölmiðla- og boðskiptafræði.

Nám í fjölmiðlafræði er kennt við Háskóla Íslands sem 60 eininga aukagrein en þar er einnig í boði 120 eininga nám í blaðamennsku til BA - prófs.

Að loknu námi

Námið er meðal annars góður grunnur fyrir störf í útvarpi, sjónvarpi, við netmiða eða blaðaskrif. Þá er margs konar framhaldsnám mögulegt s.s. í fjölmiðla- og boðskiptafræði, markaðsfræði, stjórnmálafræði eða kynjafræði.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika