NÁM

Iðjuþjálfun

Iðjuþjálfunarfræði er starfstengt grunnnám á háskólastigi. Í náminu felst meðal annars að efla færni og þekkingu varðandi iðju, heilsu, eflingu og lífsgæði fólks. Er til að mynda farið í áhrif umhverfis- og einstaklingsbundinna þátta á færni og samfélagsþátttöku og ýmsar leiðir til úrlausna.

Náminu lýkur með BS prófi og veitir rétt til að starfa sem iðjuþjálfi að fengnu starfsleyfi. Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu 25 vikna vettvangsnámi.

Kennsla

Nám í iðjuþjálfunarfræði er kennt við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf frá framhaldsskóla eða sambærilegt nám. Sjá nánar um aðgangsviðmið.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nám í iðjuþjálfunarfræði er fræðilegt og verklegt. Fræðileg námskeið á fyrsta ári, fræðileg námskeið og vettvangsnám á öðru til fjórða ári og lokaverkefni unnið á fjórða ári. Boðið hefur verið upp á stað- og fjarnám.

Að loknu námi

Eftir námið er hægt að sækja um leyfi til landlæknis og að því fengnu að starfa sem iðjuþjálfi. Eins veitir BS próf möguleika á framhaldsnámi á háskólastigi.

Störf
Iðjuþjálfi
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf