Ljósmyndun er nám á framhaldsskólastigi. Meginmarkmið námsins  er að nemendur öðlist þekkingu og færni í ljósmyndun og myndvinnslu hvort sem er á filmu eða stafrænu formi. Ljósmyndun er löggilt iðngrein.

Meðalnámstími er þrjú ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Kröfur

Nemendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla.

Námið er lánshæft til framfærsluláns og annarra lána hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Námið skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar ljósmyndunar og starfsþjálfun. Nemendur innritast fyrst í sameiginlegt þriggja til fjögurra anna grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina og síðan tekur sérhæfing ljósmyndunar við í tvær annir.

Kennsla

Nám í ljósmyndun hefur verið kennt við Tækniskólann - skóla atvinnulífsins.

Einnig hefur Ljósmyndaskólinn, sem er sérskóli á framhaldsskólastigi, lagt áherslu á tæknilegar hliðar ljósmyndunar.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika