Skólaliðanám er starfstengt og á framhaldsskólastigi. Í náminu felst að búa fólk undir störf í grunnskólum við gangagæslu, umsjón með börnum í útivist og á matmálstímum, þrif, almenn eftirlitsstörf og umsjón með skólahúsnæði. Raunfærnimat hefur farið fram í greininni þar sem færni sem aflað hefur verið á vinnumarkaði, er metin.

Meðalnámstími er eitt ár að meðtalinni sex vikna starfsþjálfun.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla. Undantekningar geta þó verið hjá einstaka skólum. Í boði er einnig nám á skólaliðabrú til að auðvelda ófaglærðu fólki með starfsreynslu að öðlast starfsréttindi. Skilyrði eru að umsækjandi hafi náð 22 ára aldri, að lágmarki þriggja ára starfsreynsla og hafa lokið starfstengdum námskeiðum.
Athugaðu hvort námið sé lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Námið skiptist í almennt bóknám, sérgreinar skólaliðabrautar og vinnustaðanám.
Skólaliðabrú er ætluð til styttingar á skólaliðabraut og er eingöngu farið í sérgreinar brautarinnar.

Kennsla

Uppeldis- og þjónustubrautir hafa verið kenndar í Verkmenntaskóla Austurlands og Borgarholtsskóla. Skólaliðabrú getur verið í boði við skólana þar sem skólaliðanámið er kennt sem og hjá fræðslu- og símenntunarstöðvum.

Að loknu námi

Að námi loknu getur tekið við starf skólaliða í grunnskóla.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika