Flokkstjóri skipuleggur og heldur utan um störf starfsfólks á tilteknu fiskvinnslusvæði. Í starfinu felst að skipa fólki til starfa, sjá til þess að unnið sé eftir fyrirliggjandi verkskipulagi og að verkefni séu rétt unnin.

Flokkstjóri fylgist með því að gæða- og öryggismál séu í lagi og getur þurft að ganga í  einstök störf ef þarf.

Verkstjóri er næsti yfirmaður flokkstjóra og vinna þeir saman að ákveðnum málum svo sem við undirbúning á vinnslu dagsins eða ef flytja þarf starfsfólk til.

Helstu verkefni

- taka á móti fólki og koma því til starfa
- fylgjast með að starfskraftar nýtist sem best
- sjá til þess að vinnutími sé virtur sem og frítími starfsfólks
- taka við kvörtunum starfsfólks og ábendingum
- skipuleggja eftirvinnslu og manna eftir þörfum
- kalla til iðnaðar- og tæknimenn ef þörf er á
- frágangur og undirbúningur næsta dags

Hæfnikröfur

Flokkstjóri þarf að eiga gott með mannleg samskipti sem eru stór hluti starfsins.  Einnig er mikilvægt að geta unnið nokkuð óreglulegan vinnutíma, mætt fyrst á morgnanna en yfirgefið vinnusvæði síðast.

Starfaprófílar FA

Námið

Gagnlegar námsleiðir og/eða námskeið kunna að vera í boði t.d. hjá Fisktækniskóla Íslands.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika