Fótaaðgerðafræðingar ráðleggja um heilbrigði fóta, meðferð og forvarnir fótameina og þau úrræði sem finnast við þeim. Í störfum sínum beita fótaaðgerðafræðingar margvíslegri meðferð og starfa ýmist á einkareknum fótaaðgerðastofum eða í tengslum við opinbera heilsugæslu. Fótaaðgerðafræði er löggilt starfsgrein.

Helstu verkefni

- greina orsök fótameins, meðhöndla eða vísa til læknis ef við á
- hreinsa sigg og neglur
- líkþorna-, vörtu- og hlífðarmeðferðir
- meðhöndla sár og sprungur á húð
- ráðleggja um fótaumhirðu og val á skófatnaði
- ráðleggja um meðferðir til að minnka verki, dreifa álagi og bæta göngulag
- útbúa spangir og meðhöndla inngrónar neglur
- útbúa hlífar, leppa og innlegg

Hæfnikröfur

Fótaaðgerðafræðingar fá starfsleyfi frá landlækni og þurfa að hafa lokið fótaaðgerðafræðinámi á framhaldsskólastigi frá viðurkenndri menntastofnun. Fótaaðgerðafræðingur þarf að geta borið ábyrgð á þeirri ráðgjöf, fræðslu, greiningu og meðhöndlun sem veitt er og hafa góða þekkingu á fótameinum og viðeigandi meðferð. Í starfinu er afar mikilvægt er gera sér grein fyrir smithættu í allri umgengni og við hreinsun áhalda og tækja.

Námið

Nám í fótaaðgerðafræði er í boði við Heilsuakademíu Keilis, alls 199 einingar og er sérnámið skipulagt sem þriggja anna samfellt nám.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika