Húsgagnabólstrarar vinna við að bólstra og klæða ný eða notuð húsgögn auk þess að sinna klæðningum og viðgerðum á innréttingum bíla eða annarra farartækja. Húsgagnabólstrun er löggilt iðngrein.

Í starfi sem húsgagnabólstrari gætirðu unnið á húsgagna- eða bólsturverkstæði, gjarnan í samstarfi við húsgagnasmiði og hönnuði.

Helstu verkefni

- huga að útliti og eiginleikum húsgagna í samráði við viðskiptavin
- útbúa teikningar í samráði við hönnuð og/eða viðskiptavin
- lagfæra grindur í húsgögnum
- bólstra með fjöðrum, náttúrulegum efnum og/eða gerviefnum
- sníða, sauma og klæða húsgögn
- gera við, hreinsa og lita leðurhúsgögn

Hæfnikröfur

Húsgagnabólstrari þarf að vera skapandi og hugmyndaríkur og geta unnið með höndunum við að teikna og sinna viðhaldi á húsgögnum. Unnið er með efni á borð við ull, bómull og leður og ýmis verkfæri svo sem nálar, skæri, hamar, saumavél og sérhæfðari rafmagns- og loftverkfæri.

Námið

Húsgagnabólstrun er í boði við Tækniskólann, fimm annir í skóla og starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika