Meindýraeyðar nota mismunandi aðferðir við að eyða meindýrum og skaðvöldum á borð við geitungabú, rottur, mýs og silfurskottur. Unnið er víða, svo sem í görðum, byggingum og holræsum og eru mismunandi efni, gas og gildrur notaðar í starfinu.
Margir meindýraeyðar vinna sjálfstætt en einnig hjá hinu opinbera eða einkaaðilum.
Helstu verkefni
- bera kennsl á meindýravandamál og skaðann sem orðinn er
- meta hvaða meðferð hentar hverju sinni
- dreifa eiturefnum á viðeigandi staði
- setja upp viðvörunarskilti og læsa byggingum til að tryggja öryggi
- hreinsa vinnusvæði að starfi loknu
- koma í veg fyrir endurtekin meindýravandamál
Hæfnikröfur
Meindýraeyðir þarf að búa yfir þjónustulund og hæfni til að leysa vandamál. Mikilvægt er að þekkja lög og reglur um örugga varnarefnanotkun. Þá er áhugi á dýrum og náttúru talsverður kostur. Nauðsynlegt er að hafa öll tilskilin leyfi í fullu gildi.
Námið
Ljúka þarf sérstöku námskeiði við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands til að geta sótt um leyfi til meindýraeyðingar.
Að afloknu námskeiði er sótt um starfsleyfi til Umhverfisstofnunar.
Tengd störf