Vélvirkjar annast uppsetningu, viðgerðir, viðhald, endurnýjun og þjónustu á hvers kyns vél- og tæknibúnaði í skipum, vinnslustöðvum, vinnuvélum, verksmiðjum og orkuveitum. Vélvirkjar vinna því alls staðar þar sem vélbúnaður er til staðar þar með talið við ráðgjöf og sölu á slíkum búnaði. Vélvirkjun er löggilt iðngrein.

Helstu verkefni

- fylgjast með ástandi vélbúnaðar og stýrikerfa og greina bilanir
- uppsetning, viðhald og viðgerðir á loft- og vökvakerfum
- uppbygging og viðhald véla, kælikerfa og loftstýringa
- smíði véla og tækja svo sem fiskvinnsluvéla og varahluta

Hæfnikröfur

Vélvirki þarf að geta metið ástand véla og skemmdra vélarhluta, gert við, endurnýjað og prufukeyrt. Þekking á suðu og kælikerfum er mikilvæg sem og að geta lesið teikningar og þekkja til öryggisráðstafanna í starfi, til dæmis hvað varðar umgengni við háþrýsting og rafmagn. Í starfinu eru notuð ýmis handverkfæri, mælitæki og málmsmíðavélar á borð við bor-, snitt- og fræsivélar.
Félag vélstjóra og málmtæknimanna

Námið

Vélvirkjun er kennd við BorgarholtsskólaFjölbrautaskóla VesturlandsFjölbrautaskóla Norðurlands vestraFjölbrautaskóla SuðurlandsTækniskólannVerkmenntaskóla Austurlands og Verkmenntaskólann á Akureyri auk þess sem grunnnám málmiðngreina má finna víðar. Nám vélvirkja tekur um fjögur ár, þrjú ár í skóla auk starfsþjálfunar.
Raunfærnimat hefur farið fram og/eða kann að vera í boði.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika