Hlutverk bóksala er að miklu leyti að ýta undir lestaránægju og miðla þekkingu. Bóksalar upplýsa, gefa góð ráð og hvetja áhugasama lesendur til dáða hvort sem um er að ræða bækur ofarlega á vinsældalistum eða faldar minna þekktar perlur.
Í starfi sem bóksali gætirðu til dæmis unnið í bókaverslun, fornbókabúð, bókaforlagi og í tengslum við bókaklúbba eða netverslanir. Samhliða bóksölunni eru einnig oft í boði tengdar vörur líkt og landakort, ljósmyndir, minjagripir eða gjafavara.
Helstu verkefni
- sala á bókum, tímaritum, ritföngum og gjafavöru
- upplýsingagjöf og leiðbeiningar um val á lesefni
- verðmerkja og flokka bækur
- raða í hillur eftir innihaldi eða höfundanöfnum
Hæfnikröfur
Bóksalar þurfa að hafa mikinn áhuga á bókum og bókmenntum auk hæfileika í samskiptum við viðskiptavini. Þekking á ólíkum greinum bókmennta er einnig kostur, innlendum sem erlendum rithöfundum auk þess sem tungumálakunnátta og þekking á fyrirtækjarekstri getur komið að góðum notum.
Byggt á Utdanning.no - Bokhandler
Tengd störf