Flugvirkjar  framkvæma reglubundnar skoðanir á flugvélum, meta ástand véla og tækjabúnaðar ásamt því að annast viðgerðir, viðhald og eftirlit. Oft er um að ræða vaktavinnu sem annað hvort fer fram utandyra, þar sem flugvél er lagt í styttri tíma, eða í flugskýli.
Í starfi sem flugvirki gætirðu hvort tveggja unnið á flugvélaverkstæðum eða á opinberum flugvöllum.

Helstu verkefni

- skoða og yfirfara flugvélahluta eftir nákvæmum áætlunum
- sjá um að hvorki sé eldsneytis- né olíuleki
- kanna ástand rafmagns-, vökva-, lofþrýstings- og stýrikerfa flugvéla
- fylgjast með að fjarskipta- og siglingatæki séu í lagi
- tilkynna um galla og bilanir sem koma fram við skoðun
- sjá um að réttar upplýsingar séu skráðar í viðhaldsbækur flugvéla
- yfirfara tækjabúnað flugvéla sem eru í daglegri notkun

Hæfnikröfur

Starf flugvirkja er tengt öryggi flugfarþega og því eru þolinmæði, nákvæmni og ábyrgð mjög æskilegir kostir í starfinu. Einnig er góð enskukunnátta mikilvæg, rituð og töluð. Sem flugvirki notarðu ýmis verkfæri við viðhald og lagfæringar á flugvélahlutum.
Flugvirkjafélag Íslands

Námið

Flugvirkjanám á Íslandi er 2400 klukkustunda réttindanám til sveinsprófs - kennt í Tækniskólanum.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika