Atvinnuflugmannsnám er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst meðal annars að nemendur öðlist færni og þekkingu á afkastagetu, áætlanagerð, flugveðurfræði, verklagsreglum, flugfræði og fjarskiptum tengdum flugi og loftförum. Eins að nemendur nái færni í sjónflugi og blindflugi.
Meðalnámstími bóklegs náms er eitt ár en verklegt getur verið breytilegt.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára, hafa einkaflugmannsskírteini, 1. flokks heilbrigðisvottorð og hafa flogið að minnsta kosti 150 klukkustundir sem flugmaður. Gerðar eru kröfur um ákveðna þekkingu í stærðfræði, eðlisfræði og ensku. Sjá nánar inntökuskilyrði skólanna.
Námið hefur verið lánshæft til framfærsluláns og annarra lána hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Atvinnuflugmannsnám skiptist í bóklegar greinar og verklegt nám. Fyrstu tvær annirnar er farið í bóklegar greinar atvinnuflugs en verklegur hluti er að lágmarki 25 tímar með flugkennara. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.
Kennsla
Atvinnuflugmannsnám hefur verið kennt við Flugskóla Reykjavíkur. Á vef Samgöngustofu má finna margskonar frekari upplýsingar.
Að loknu námi
Bóklegt og verklegt nám veitir atvinnuflugmannsréttindi og þar með leyfi til að starfa við og fá greitt fyrir að fljúga hjá flugrekanda.
Tengt nám