Safnverðir hafa umsjón með skráningu og flokkun safnmuna, taka þátt í uppsetningu sýninga ásamt því að taka á móti gestum og leiðsegja á sýningarsvæði eða í safni.
Í starfi safnvarðar gætirðu haft umsjón með safni eða sögulegum stöðum. Margir safnverðir sérhæfa sig á ákveðnu sviði svo sem í tengslum við náttúru, listir eða sögu.
Helstu verkefni
- umsjón með daglegum rekstri safns
- afla, geyma og sýna muni
- setja upp sýningar, sjá um hönnun þeirra og þemu
- kynning á safni fyrir almenning
- halda munum hreinum
Hæfnikröfur
Safnvörður þarf að hafa mikinn áhuga á sögu og varðveislu safnmuna. Skipulagshæfni, nákvæm vinnubrögð og frumkvæði eru gagnlegir kostir í starfi safnvarðar auk færni í mannlegum samskiptum, tungumála- og tölvukunnáttu.
Námið
Alla jafna er ekki er farið fram á sérstaka menntun til að gegna starfi safnvarðar þó margvísleg menntun geti verið gagnleg, til að mynda í sagnfræði, fornleifafræði, listfræði, þjóðfræði eða mannfræði.
Safnafræði er kennd við Háskóla Íslands sem 30 eininga viðbótardiplóma og til meistaragráðu.
Tengd störf